Skip to content
Búsetufrelsi
Menu
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Fróðleiksmolar
  • Lög félagsins
  • Stjórn
  • Fundargerðir
  • Um okkur
  • Innskráning
Menu

Hvert fer út­svarið mitt?

Posted on 7. júní, 2023

Sandra Gunnarsdóttir skrifar 5. júní 2023 10:31

Okkur hjónin hafði lengi dreymt um að komast í sveitakyrrðina og svo árið 2016 létum við vaða. Við seldum íbúðina í bænum og fluttum í frístundahúsið okkar. Leiðin var löng. Það þurfti að finna lóð, byggja, huga að fjármálum við starfslok og fleira. En á endanum tókst þetta og nú erum við búin að vera hér í Grímsnes og Grafningshreppi í 7 ár.

Þó við höfum talið okkur vera vel undirbúin þá vissum við í raun ekkert hvað við vorum að fara út í. Hvað með lögheimili, póst, tryggingar og ýmislegt annað. Fyrstu árin áttum við lögheimili hjá ættingjum í bænum og borguðum því útsvar til annars sveitarfélags en við búum í. Var það sanngjarnt að útsvarið okkar væri nýtt annars staðar, alls ekki í okkar þágu? En hvað annað var í boði?

Eftir flutninginn fórum við að kynnast fólki í sömu stöðu og við, dásamlegum hópi fólks sem býr í frístundahúsum sínum hér í fallegu sveitinni okkar og eiga lögheimili hér. Lögheimili segi ég því þau eru skráð ,,ótilgreint“ vegna þess að ekki er heimilt að eiga lögheimili í frístundahúsi.

Þegar við komumst að því að það væri löglegt að skrá lögheimili hér í sveit vorum við fljót að breyta skráningunni hjá Þjóðskrás. Þá loksins nýtist útsvarið okkur á réttum stað. Eða hvað? Eldri borgarar sem eru ,,ótilgreindir“ njóta jú sömu réttinda og aðrir íbúar í sveitinni. Við fáum afslátt í sund eins og aðrir löglegir íbúar hreppsins. En hvað fleira?

Sorpþjónusta, snjómokstur, skólaakstur, póstþjónusta. Við sem búum í frístundahúsum okkar fáum ekkert af þessu þó við greiðum sama útsvar og aðrir í hreppnum. Við hjónin flokkum allt rusl og förum með á grenndarstöðvarnar sem eru á nokkrum stöðum í hreppnum á meðan aðrir íbúar fá sorpþjónustu heim að dyrum. Við þurfum að greiða sjálf fyrir snjómokstur. Þeir sem eiga börn á skólaaldri þurfa að keyra þau í skólann. Við fáum ekki póstinn heim eins og aðrir íbúar. Við getum hins vegar fengið biðpóstsþjónustu sem kostar nú 14.400 kr fyrir árið. Við þurfum að borga fyrir þetta og keyra á Selfoss til að sækja póstinn á meðan aðrir íbúar fá þessa þjónustu án auka útgjalda.

Ég er ekki að kvarta, mér finnst dásamlegt að búa hér í sveitinni minni, er í kvenfélaginu, stunda leikfimi og sund, nýti mér alla þjónustu sem ég get hér og nýt þess að vera í náttúrunni. Við höfum líka kynnst dásamlegu fólki hér, bæði þeim sem búa í frístundahúsum og öðrum. Ég er í stjórn frístundahúsafélagsins á okkar svæði og í stjórn Búsetufrelsis, sem eru samtök íbúa sem eiga fasta búsetu í Grímsnes og Grafningshreppi.

En stóra spurningin er hvar eru mannréttindin þarna? Á ekki að gæta jafnræðis þegnanna eins og kveðið er á um í Stjórnarskránni. Af hverju borgum við fullt útsvar en fáum ekki sömu þjónustu og aðrir? Erum við annars flokks fólk?

Höfundur er stjórnarmaður Búsetufrelsis og íbúi í Grímsnes og Grafningshrepp.

Nýlegar fréttir

  • Aðalfundur Búsetufrelsis haldinn 11. maí 2025
  • Aðalfundargerð 11 mai 2025
  • Stórfelldu malarnámi hafnað
  • Aðalfundarboð 11. mai 2025
  • Kæru Búsetufrelsisfélagar

Íbúar með fasta búsetu í heilsárshúsi í frístundabyggð – GOGG. Tilgangur félagsins er hagsmunagæsla fyrir íbúa i heilsárshúsum i frístundabyggðum í GOGG sem stefna að því að fá frístundahús sitt skráð lögformlega sem lögheimili og auka þannig á öryggi fólks og bæta réttarstöðu þess sem hingað til hefur verið skráð ótilgreint í húsi í GOGG. Tilgangur félagsins er jafnframt að stuðla að aukinni þátttöku fyrrgreindra íbúa í jákvæðri þróun nærsamfélagsins.

©2025 Búsetufrelsi |

Vefur: Draumavefir - Alvöru vefsíðugerð