Skip to content
Búsetufrelsi
Menu
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Fróðleiksmolar
  • Lög félagsins
  • Stjórn
  • Fundargerðir
  • Um okkur
  • Innskráning
Menu
Grænbók um skipulagsmál - umsagnir

Grænbók um skipulagsmál – umsagnir

Posted on 13. september, 2023

Samráðsgátt – opið samráð stjórnavalda við almenning – vefur vistaður á island.is

Eftirfarandi tilkynning birtist 27. júlí sl.

“Innviðaráðherra hyggst á komandi haustþingi leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. 

Fyrsta landsskipulagsstefna Íslands var samþykkt á Alþingi árið 2016, með gildistíma til 2026. Í samræmi við ákvæði 10. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lög nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála er nú unnið að endurskoðun á stefnunni. Grænbók um skipulagsmál sem hér er lögð fram til umsagnar er liður í þeirri vinnu. 

Endurskoðunin er unnin með hliðsjón af gildandi landsskipulagsstefnu, áherslum innviðaráðherra og samráði við sveitarfélög, íbúa sveitarfélaga þ.m.t. ungt fólk, ráðuneyti og aðra hagaðila. Þá er horft til stefna sem fyrirliggjandi eru í öðrum áætlunum stjórnvalda sem áhrif hafa á þróun byggðar og landnýtingu. 

Grænbók um skipulagsmál er ætlað að veita upplýsingar um núverandi stöðu landsskipulagsstefnu. Leitast er við að svara því hvernig gildandi landsskipulagsstefna hefur reynst og hverjar eru helstu áskoranir til næstu fimmtán ára. Sett er fram tillaga að framtíðarsýn og drög að áherslum. 

Grænbókin byggir meðal annars á fyrirliggjandi gögnum hjá Skipulagsstofnun og öðrum opinberum aðilum, vinnu starfshópa og samráði sem farið hefur fram við almenning og aðra hagaðila, rafrænni spurningakönnun meðal sveitarfélaga, opnu samráði við almenning með fundaröðinni „Vörðum leiðina saman“ sem haldin var í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga sem og rafrænni spurningakönnun meðal ungs fólks.

Grænbókin leggur grunn að endurskoðun landsskipulagsstefnu til næstu ára. Í henni er stöðumat ásamt drögum að lykilviðfangsefnum, framtíðarsýn og áherslum við gerð stefnunnar, sem og nálgun við mat á umhverfisáhrifum. 

Samhliða grænbók eru drög að greinargerð um stöðu og þróun skipulagsmála í landinu í kynningu sem viðauki. Greinargerðin verður unnin áfram samhliða endurskoðun landsskipulagsstefnu. 

Mikilvægt er að fá fram skoðanir og álit almennings og annarra hagaðila á þessum þáttum og eru því öll hvött til að kynna sér efni grænbókarinnar og senda umsögn sína inn í samráðsgáttina. Á grundvelli hennar verður unnið stefnuskjal eða svokölluð hvítbók og í framhaldinu þingsályktunartillaga um landsskipulagsstefnu til 15 ára og fimm ára aðgerðaáætlun.

Stefnt er að því að tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu verði lögð fram á haustþingi.”

Búsetafrelsi skilaði inn umsögn í samráðsgáttina áður en umsagnarfrestur rann út (27.07.2023–24.08.2023). Samkvæmt vefnum verða niðurstöður samráðsins birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust. 

Í meðfylgjandi link má finna: samradsgatt.island.is

Umsögn Búsetufrelsis
Umsögn GOGG
Umsögn Bláskógarbyggðar

Endilega lesið vel umsagnirnar sem sveitarfélögin tvö sendu inn. Merkilegt hvað þeim er umhugsð um að frjáls búseta verði ekki að veruleika.

Nýlegar fréttir

  • Aðalfundur Búsetufrelsis haldinn 11. maí 2025
  • Aðalfundargerð 11 mai 2025
  • Stórfelldu malarnámi hafnað
  • Aðalfundarboð 11. mai 2025
  • Kæru Búsetufrelsisfélagar

Íbúar með fasta búsetu í heilsárshúsi í frístundabyggð – GOGG. Tilgangur félagsins er hagsmunagæsla fyrir íbúa i heilsárshúsum i frístundabyggðum í GOGG sem stefna að því að fá frístundahús sitt skráð lögformlega sem lögheimili og auka þannig á öryggi fólks og bæta réttarstöðu þess sem hingað til hefur verið skráð ótilgreint í húsi í GOGG. Tilgangur félagsins er jafnframt að stuðla að aukinni þátttöku fyrrgreindra íbúa í jákvæðri þróun nærsamfélagsins.

©2025 Búsetufrelsi |

Vefur: Draumavefir - Alvöru vefsíðugerð