Skip to content
Búsetufrelsi
Menu
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Fróðleiksmolar
  • Lög félagsins
  • Stjórn
  • Fundargerðir
  • Um okkur
  • Innskráning
Menu
Aðalfundarboð 10. apríl 2024

Aðalfundarboð 10. apríl 2024

Posted on 17. mars, 2024

Aðalfundur Búsetufrelsis, íbúasamtaka fólks með búsetu í heilsárshúsi í Grímsnes og Grafningshreppi.

Aðalfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 10 apríl kl. 19:00 í Félagsheimilinu að Borg.

Dagskrá
1.    Fundur settur – val á fundarstjóra og fundarritara
2.    Skýrsla stjórnar
3.    Framlagning ársreiknings
4.    Kosning formanns – kosinn til eins árs
5.    Kosning nýrra stjórnarmanna – tveir til tveggja ára
6.    Kosning skoðunnarmanns reikninga og varamanns
7.    Kynning á framkvæmdagjaldi – lagt fram til samþykktar
8.    Félagsgjald lagt fram til samþykktar
9.    Önnur mál

a. Það sem áunnist hefur
b. Næstu skref
c. Önnur málefni sem félagsmenn vilja bera upp

Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta á fundinn og leggja orð í belg en eingöngu þeir félagar sem hafa tekið hið mikilvæga skref að skrá lögheimili sitt í hreppnum, Ótilgreint, 805 Grímsnes og Grafningshreppur hafa kjörgengi og kosningarétt.

Mikilvægt er að sem flestir mæti til að við fáum sem raunsannasta mynd af fjölda þeirra sem eiga sitt aðalheimili í heilsárshúsi sínu.

Félaga er heimilt að veita öðrum fulltrúa umboð til að sækja aðalfund og fara með atkvæðisrétt sinn gegn skriflegu, dagsettu umboði.

Fjölmennum og sýnum samtakamátt okkar!

Léttar veitingar í boði.

Nýlegar fréttir

  • Aðalfundur Búsetufrelsis haldinn 11. maí 2025
  • Aðalfundargerð 11 mai 2025
  • Stórfelldu malarnámi hafnað
  • Aðalfundarboð 11. mai 2025
  • Kæru Búsetufrelsisfélagar

Íbúar með fasta búsetu í heilsárshúsi í frístundabyggð – GOGG. Tilgangur félagsins er hagsmunagæsla fyrir íbúa i heilsárshúsum i frístundabyggðum í GOGG sem stefna að því að fá frístundahús sitt skráð lögformlega sem lögheimili og auka þannig á öryggi fólks og bæta réttarstöðu þess sem hingað til hefur verið skráð ótilgreint í húsi í GOGG. Tilgangur félagsins er jafnframt að stuðla að aukinni þátttöku fyrrgreindra íbúa í jákvæðri þróun nærsamfélagsins.

©2025 Búsetufrelsi |

Vefur: Draumavefir - Alvöru vefsíðugerð